IG Neoprene Vöðlur

IG 2.0 Neoprene eru hlýjar og slitsterkar vöðlur úr hágæða ECO-LIMESTONE neoprene. Þær eru hannaðar fyrir íslenskar aðstæður og henta vel í vatnaveiði sem skotveiði þar sem hlýja og ending skipta máli.

39.900kr.

IG 2.0 Neoprene er ný kynslóð af IG vöðlum, hannaðar fyrir þá sem þurfa hlýjar, sterkar og áreiðanlegar vöðlur í erfiðum aðstæðum. Þær eru framleiddar úr hágæða ECO-LIMESTONE neoprene sem sameinar góðan styrk, sveigjanleika og þægindi í notkun.

Vöðlurnar eru sérstaklega hentugar fyrir íslenskar aðstæður, hvort sem þær eru notaðar við veiðar í köldum ám, við vatnaveiði eða í skotveiði, þar bleyta og álag koma við sögu. Neoprene efnið heldur vel á hita og gerir vöðlurnar þægilegar þegar dvalið er lengi í köldu vatni eða við votviðrasamar aðstæður. Vöðlurnar eru með góðum filtbotni sem hentar vel í flesta notkun.

IG 2.0 vöðlurnar eru saumaðar með endingu í huga. Þær eru slitsterkar, traustar og gerðar til að þola mikla notkun. Þetta eru vöðlur fyrir þá sem vilja búnað sem má treysta á þegar aðstæður eru krefjandi og hefðbundnar léttari vöðlur duga ekki til.

Helstu eiginleikar

  • Hágæða ECO-LIMESTONE neoprene
  • Hlýjar og þægilegar í köldu vatni
  • Mjög slitsterkar og traustar
  • Hannaðar fyrir íslenskar aðstæður
  • Góðar í veiði og aðra krefjandi útiveru

ATH litlar stærðir

Athugið að búkstærðirnar eru frekar litlar. Við mælum með að velja að minnsta kosti einu númeri stærra en þú notar venjulega. Dæmi: Ef þú notar skóstærð 44 og ert venjulega í stærð M í fatnaði, mælum við með að velja 44-L.