Vosso-fluguveiðihjólin eru án efa þau bestu sem Guideline hefur framleitt. Þau eru algjörlega lokuð (e. full frame) sem kemur í veg fyrir að línan geti fest á milli hjólsins og spólunnar. Vosso hjólin státa af nútímalegri hönnun og vel byggðu vatnsheldu bremsukerfi. Búnaður hjólsins er varinn fyrir hitabreytingum, vatni, sandi og öðrum utanaðkomandi efnum. Hjólið er hannað með veiðar á laxi og sjóbirtingi í huga.
Vosso hjólin eru létt en mjög sterk, þau eru ummálsmikil og taka því mikið magn undirlínu. Hjólin eru fáanleg fyrir stærri einhendur, switch-stangir og tvíhendur.