Guideline LPX Chrome Tvíhendupakki 13,9′ #9/10

> Mikið afl en nákvæm um leið
> Hönnuð fyrir stærri laxveiðiár
> Í pakkanum er Halo hjól og 3D+ skothaus
> Vegur 210 gr. – línuþyngd 37-40 gr.

178.900kr.

Vinsamlega veldu inndrátt fluguhjólsins:

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

LPX Chrome tvíhendupakkinn frá Guideline er samsettur fyrir laxveiðina. Hann samanstendur af LPX Chrome tvíhendu, Halo fluguveiðihjóli, undirlínu, TSL rennilínu og 3D+ Compact skothaus eða annarri sambærilegri línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.

LPX Chrome tvíhendurnar eru hannaðar og framleiddar með glænýrri virkni frá Guideline. Þær eru með ¾ djúpri hleðslu og afl sem nýtist snemma í kastinu án þess að draga úr hraða stanganna. Þær eru léttleikandi, búa að miklum stöðugleika og með viðbragðsflýti sem tengir veiðimenn við köstin á alveg nýjan hátt. Stangirnar eru fullkomin verkfæri til að nota í íslenskum ám og gerðar til að takast á við lax og sjóbirting. Þær eru af miklum gæðum og búa að mörgum kostum sem sjaldnast sjást í stöngum á jafn hagstæðu verði.

Halo fluguveiðihjólið sem fylgir með í stangarpakkanum er frá Guideline og er framleitt er úr renndu áli. Það er tiltölulega eðlislétt og er algjörlega lokað svo ekki er hætta á að línan festist á milli hjólsins og spólunnar. Halo er með vatnsþéttu og öflugu diskabremsukerfi sem er svo gott sem viðhaldsfrítt. Hjólið er breiðkjarna (e. full frame) sem gerir veiðimönnum kleift að ná slaka inn hratt, auk þess sem hönnunin dregur úr líkum á línuminni.

Hjólið er uppsett með undirlínu, TSL rennilínu og 3D+ Compact skothausnum frá Guideline. Lengd hans eru rúmir 8 metrar og hentar frábærlega í stærð íslenskra ársvæða. Línan heldur góðu jafnvægi og kastar þungum og efnismiklum flugum með lítilli fyrirhöfn. Unnt er að ná fram löngum köstum, en skothausinn hentar þó einnig á styttra færi sem gerir hann að frábærri alhliða flugulínu. Uppbygging skothaussins gerir línustjórnun mjög einfalda og skilvirka auk þess sem hleðsla stangarinnar verður ákaflega áreynslulaus.

 

Ítarupplýsingar um tvíhenduna


Leyndarmálið á bak við frábrugðna virkni stanganna er ný tækni frá Guideline sem þeir nefna C.A.P M4.0™. Um er að ræða háþróaða koltrefjauppsetningu sem skapar einstaka sveigju stanganna. Þeim er best lýst sem framsæknum miðlungshröðum (e. Medium Fast) stöngum með hraðri endurheimt (e. Fast Recovery). Toppurinn er afar stöðugur og nær að framkalla þröngan línubug, auk þess sem hann er nægjanlega öflugur til að lyfta þungum sökklínum.Meðan á flugukastinu stendur tengist veiðimaðurinn neðri hluta stangarinnar sem skilar ótrúlegum áhrifum þegar stöngin er stöðvuð í fram- og afturkastinu. Þetta gerir það að verkum að unnt er að ná löngum köstum með afar litlu afli. Hliðarstöðugleiki LPX Chrome gerir það að verkum að flugulínan fylgir stönginni einkar vel þegar hanni er sveiflað og snúið í kastinu. Þessir eiginleikar leiða af sér nákvæmari fluguköst, aukinn línuhraða og betri línubug. Þetta er sannarlega ný virkni sem markar ákveðin þáttaskil til framtíðar hjá Guideline.

Hjólasæti LPX Chrome flugustanganna er sérhannað og er korkurinn í handfanginu fyrsta flokks. Til að tryggja langa endingu er það búið sérstökum gúmmí-styrkingum sem munu standa tímans tönn. Virkni hverrar stangar er misjöfn eftir lengd og línuþyngd til að nýtast veiðimönnum í ólíkum aðstæðum. Guideline mælir með tvennskonar línum með þessum stöngum en þær eru 3D+, í venjulegri lengd eða styttri, eða 4D Compact Multi Tip línukerfinu.

  • Háþróuð A.P M4.0™ koltrefjauppsetning.
  • Miðlungshröð með uppbyggingu sem hraðar endurheimt.
  • Fjölhæf stöng sem ræður við allar línugerðir.
  • Ofurléttar með lágri sveifluþyngd sem gerir þér kleift að veiða lengi án þess að þreytast.
  • Blágrá gljáandi áferð með samsvarandi vöf.
  • Hágæða korkur með sérstakri styrkingu.
  • Rafhúðað hjólasæti með einstöku álagsþoli.
  • Léttar og tæringarþolnar lykkjur úr títani með zirconia-innleggi.
  • Efri lykkjur eru PVD-húðaðar með mattri grárri áferð.
  • Stöngin kemur í stangarsokk og hólk sem unninn er úr endurunnum efnum.

 

C.A.P M4.0 tæknin

C.A.P M4.0™ koltrefjauppsetningin skapar einstaka sveigju með hraðri endurheimt og mikilli nákvæmni. C.A.P tæknin er með flóknu áslægu mynstri, CAP (e. Complex Axial Pattern) sem parað er við einátta koltrefjauppbyggingu. Með tækninni eru koltrefjalög lögð upp í mismunandi horn hvert á annað til að hámarka styrk og stöðugleika í allar áttir. Í einátta óofnu koltrefjamynstri liggja allar trefjarnar í einni samsíða stefnu, sem tryggir hámarksstyrk stangardúksins. M4.0 er kvoðan eða plastefnið (e. Resin) sem notað er í þessháttar uppbyggingu. Vegna þeirra eiginleika sem efnið hefur er fyllt betur í eyður stangardúksins en með öðrum hefðbundnum efnum sem leiðir af sér meiri styrk. Það dregur einnig úr magni plastefnisins sem annars þyrfti að nota sem endurspeglast í því hve léttar stangirnar eru.