LPX Chrome tvíhendupakkinn frá Guideline er samsettur fyrir laxveiðina. Hann inniheldur LPX Chrome tvíhendu, Halo fluguveiðihjól, undirlínu og Laxá tvíhendulínu í heildstæðri samsetningu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
LPX Chrome tvíhendurnar eru hannaðar með nýjustu tækni frá Guideline. Þær eru með ¾ djúpri hleðslu sem virkjast snemma í kastinu án þess að draga úr hraða stanganna. Þær eru léttleikandi, stöðugar og með frábæra viðbragðsflýti sem skapar sérstaka tengingu við kastið. Þessar stangir eru fullkomin verkfæri í íslenskar aðstæður og henta jafnt fyrir lax og sjóbirting. Þær eru hágæða í alla staði og bjóða upp á eiginleika sem sjaldgæft er að finna í stöngum í þessum verðflokki.
Halo fluguveiðihjólið sem fylgir með er úr renndu áli og tiltölulega eðlislétt. Það er með lokuðu breiðkjarna sem kemur í veg fyrir að línan festist og gerir auðvelt að ná slaka hratt inn. Öflugt og viðhaldsfrítt diskabremsukerfi tryggir áreiðanleika og góða stjórn við krefjandi aðstæður.
Á hjólinu er undirlína og Laxá – hágæða flotlína sem hönnuð er sérstaklega fyrir stærri laxveiðiár á borð við Laxá í Aðaldal, Sogið og Jöklu. Hún hentar jafnt byrjendum sem reyndum veiðimönnum og nýtist vel við fjölbreyttar veðuraðstæður. Línan situr hátt á vatnsyfirborðinu, sem dregur úr viðnámi og gerir köstin auðveldari og markvissari. Rennilínan er sniðin að línuþyngd og tryggir að línan renni mjúklega í gegnum lykkjur stangarinnar. Mjúk kápa og þægileg meðhöndlun gera línuna sérstaklega hentuga til að strippa.
Laxá nýtur sín best þegar skothausinn er allur fyrir utan stangartoppinn, og fer sérstaklega vel með löngum, frammjókkandi taumum.
Ítarupplýsingar um tvíhenduna
Leyndarmálið á bak við frábrugðna virkni stanganna er ný tækni frá Guideline sem þeir nefna C.A.P M4.0™. Um er að ræða háþróaða koltrefjauppsetningu sem skapar einstaka sveigju stanganna. Þeim er best lýst sem framsæknum miðlungshröðum (e. Medium Fast) stöngum með hraðri endurheimt (e. Fast Recovery). Toppurinn er afar stöðugur og nær að framkalla þröngan línubug, auk þess sem hann er nægjanlega öflugur til að lyfta þungum sökklínum.Meðan á flugukastinu stendur tengist veiðimaðurinn neðri hluta stangarinnar sem skilar ótrúlegum áhrifum þegar stöngin er stöðvuð í fram- og afturkastinu. Þetta gerir það að verkum að unnt er að ná löngum köstum með afar litlu afli. Hliðarstöðugleiki LPX Chrome gerir það að verkum að flugulínan fylgir stönginni einkar vel þegar hanni er sveiflað og snúið í kastinu. Þessir eiginleikar leiða af sér nákvæmari fluguköst, aukinn línuhraða og betri línubug. Þetta er sannarlega ný virkni sem markar ákveðin þáttaskil til framtíðar hjá Guideline.
Hjólasæti LPX Chrome flugustanganna er sérhannað og er korkurinn í handfanginu fyrsta flokks. Til að tryggja langa endingu er það búið sérstökum gúmmí-styrkingum sem munu standa tímans tönn. Virkni hverrar stangar er misjöfn eftir lengd og línuþyngd til að nýtast veiðimönnum í ólíkum aðstæðum. Guideline mælir með tvennskonar línum með þessum stöngum en þær eru 3D+, í venjulegri lengd eða styttri, eða 4D Compact Multi Tip línukerfinu.
- Háþróuð A.P M4.0™ koltrefjauppsetning.
- Miðlungshröð með uppbyggingu sem hraðar endurheimt.
- Fjölhæf stöng sem ræður við allar línugerðir.
- Ofurléttar með lágri sveifluþyngd sem gerir þér kleift að veiða lengi án þess að þreytast.
- Blágrá gljáandi áferð með samsvarandi vöf.
- Hágæða korkur með sérstakri styrkingu.
- Rafhúðað hjólasæti með einstöku álagsþoli.
- Léttar og tæringarþolnar lykkjur úr títani með zirconia-innleggi.
- Efri lykkjur eru PVD-húðaðar með mattri grárri áferð.
- Stöngin kemur í stangarsokk og hólk sem unninn er úr endurunnum efnum.
C.A.P M4.0 tæknin
C.A.P M4.0™ koltrefjauppsetningin skapar einstaka sveigju með hraðri endurheimt og mikilli nákvæmni. C.A.P tæknin er með flóknu áslægu mynstri, CAP (e. Complex Axial Pattern) sem parað er við einátta koltrefjauppbyggingu. Með tækninni eru koltrefjalög lögð upp í mismunandi horn hvert á annað til að hámarka styrk og stöðugleika í allar áttir. Í einátta óofnu koltrefjamynstri liggja allar trefjarnar í einni samsíða stefnu, sem tryggir hámarksstyrk stangardúksins. M4.0™ er kvoðan eða plastefnið (e. Resin) sem notað er í þessháttar uppbyggingu. Vegna þeirra eiginleika sem efnið hefur er fyllt betur í eyður stangardúksins en með öðrum hefðbundnum efnum sem leiðir af sér meiri styrk. Það dregur einnig úr magni plastefnisins sem annars þyrfti að nota sem endurspeglast í því hve léttar stangirnar eru.
Patagonia Fly Catcher R. Tan Derhúfa
Veniard Hare Mask
Guideline Logo Svört Derhúfa
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Hat G. Green Derhúfa
Loop 7X 9,6' #6
Patagonia Fly Catcher Hat C. Brown Derhúfa
Bodkin - Nál með krók
Guideline Trout Slit Flugubox
Patagonia Broadcaster Hat R. Green Derhúfa
Loop 7X 9' #7
Guideline Mayfly Suede Derhúfa - DK Brown
Guideline Badge Trucker Cap Heat Derhúfa
Coghlans Flugnanet
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Hat W. Blue Derhúfa
Wapsi Ostrich Mini Plumes
Tacky Daypack Flugubox
Loop Z1 13' #6
Guideline Badge Old Gold Derhúfa
Fishpond Thunderhead Eco Yucca - Bakpoki
Loon Water Based Thinner - Þynnir
Smartwool Neck Gaiter F. Pine - Hálskragi
Loop Trak Tvíhendupakki 13,2′ #8
Taumaklippur
Loon Tying Mat - Fluguhnýtingamotta
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Svört Derhúfa
Opinel Trekking N°8 Dark Blue Vasahnífur
Patagonia Stealth Switch Pack 3L Veiðitaska - R. Green
Fishpond Dorsal Fin Quilted Trucker Hat Campfire Derhúfa
Fishpond Brim Beanie Spruce
Leech Hawk - Pro - Yellow
Opinel Trekking N°7 Green Vasahnífur
Guideline Coastal Trucker Derhúfa
Acryl-þynnir
CND Gravity 11,6' #7/8
Guideline Experience Waterproof Zip 21 Bakpoki
Guideline Mesh Wallet 4D Body & Tips - Veski
Guideline Chrome Trucker Derhúfa
Stonfo Lanyard Hálsfesti
Loop Logo Húfa Vínrauð
GL Hitamælir
Echo Lift 9' #8
Leech ATW Kidz Black - Veiðigleraugu fyrir börn
Tacky Original Flugubox 2X
Fishpond Cross Current Brjóstpoki
Costa May Gold Veiðigleraugu 580G
Veniard English Partridge Brown Back
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #5 






















