Guideline Fario LW Bronze 6/8

> Gæðahjól í alla silungsveiði
> Hentar einhendum í línuþyngdum #6-8
> Vegur aðeins 141 gr.

63.900kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Fario LW frá Guideline eru fluguveiðihjól sem eru sérstaklega hönnuð með silungsveiðimenn í huga. Bremsubúnaðurinn er algjörlega lokaður og er virkilega þýður. Fario-hjólin eru einstaklega létt og hentar því vel fyrir nettari silungsveiðistangir. Þetta fluguhjól er byggt á Truss X eiginleikunum Vosso hjólanna, en aðlagað til að henta mjóu og tignarlegu útlit Fario LW hjólsins. Innfelldur fóturinn færir hjólið nær handfangi stangarinnar fyrir betra jafnvægi og minna tog í köstunum. Á hjólinu er innbyggður taumahaldari sem dregur úr líkjum á flækjum.

Fario LW er létt hjól með lítið þvermál sem býr að vatnsheldu og innsigluðu bremsukerfi. Stærð #6/8 er með öflugri bremsu og hentar því í alla silungsveiði en einnig í nettari lax- og sjóbirtingsveiði. Stillingarsvið bremsunnar er 360° og býður upp á mikið sem lítið viðnám.