Fishpond Hailstorm Kælitaska

Hailstorm er virkilega vönduð 40L kælitaska frá Fishpond sem rúmar allt að 32 dósir auk íss. Kælitaskan er búin góðri einangrun og hönnuð til að halda drykkjum eða matvælum köldum í langan tíma, jafnvel í nokkra daga.

28.995kr.

Vara uppseld

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Hailstorm er virkilega vönduð 40L kælitaska frá Fishpond sem rúmar allt að 32 dósir auk íss. Kælitaskan er búin góðri einangrun og hönnuð til að halda drykkjum eða matvælum köldum í langan tíma, jafnvel í nokkra daga. Á ofanverðri töskunni er flipi til að ná í innihald hennar án þess að opna töskuna upp á gátt.

Kælitaskan er framleidd úr vaxbornum dúk og eru rennilásar frá YKK. Botn töskunnar er harður og þolir mikið hnjask. Að framan er renndur vasi, s.s. undir upptakara eða aðra smáhluti. Axlaról fylgir töskunni sem auðveldar burð milli staða. Tilvalin kælitaska í ferðalagið, útileguna, veiðiferðina eða aðra útivist.  Stærð hennar er 48 x 27 x 29 cm.