Aquanova Sökklína (X-fast)

Aquanova X-fast er hraðsökkvandi flugulína sem nota má í hverskonar veiði. Línan reynist best í straumvatni, þegar koma þarf flugunni mjög hratt niður til fisksins. Sökklínan hentar bæði í lax- og silungsveiðiár.

5.990kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Aquanova X-fast sekkur hratt eða 14 -15 cm/sek. Hún beinsekkur, þ.e. sekkur fyrst og hraðast fremst, næst agninu. Þessi eiginleiki bætir flugustjórnun og auðveldar veiðimanni að ná línunni upp úr vatninu. Kápan er teflonhúðuð til þess að minnka viðnám í lykkjum stangarinnar. Sökklínan hentar í öllum veðuraðstæðum og kastar vel flestum flugugerðum. Hún nýtist best í miklu og köldu vatni. Heildarlengd línunnar er 27 metrar.

Aquanova-línurnar eru framleiddar af kanadíska fyrirtækinu Norhern Sport. Meginstarfsemi Northern Sport hefur falist í framleiðslu á flugulínum sem seldar eru undir merkjum annarra fyrirtækja um allan heim, en minni áhersla hefur verið lögð í sölu á línum undir eigin vörumerki. Veiðiflugur munu nú bjóða upp á þessar flugulínur sem ódýran valkost fyrir veiðimenn.