Aquanova Sink Tip

Aquanova Sink Tip er framþung flotlína með stuttum sökkenda. Línan hentar ákaflega vel í minni laxveiðiár þar sem nálægðin við fiskinn er töluverð, en ekki síður í silungsveiði í straumvatni, s.s. í Mývatnssveit. Línustjórnun er mjög þægileg sökum uppbyggingar línunnar.

5.990kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Aquanova Sink Tip er í grunninn flotlína en bláendi línunnar sekkur. Eiginleikarnir eru svipaðir og þegar veitt er með flotlínu og sökkendi settur framan við. Kosturinn við sink tip línur er hinsvegar sá að sökkendinn er eiginlegur hluti línunnar og raskar því ekki flugukastinu.

Línan er fáanleg í línuþyngdum #3-10. Lengd sökkendans er 12 fet eða 3,66 metrar. Sökkhraðinn er 4 til 10 cm. á sekúndu. Línuna má nota með flestum flugustærðum, allt upp í meðalstórar túpur.

Aquanova-línurnar eru framleiddar af kanadíska fyrirtækinu Norhern Sport. Meginstarfsemi Northern Sport hefur falist í framleiðslu á flugulínum sem seldar eru undir merkjum annarra fyrirtækja um allan heim, en minni áhersla hefur verið lögð í sölu á línum undir eigin vörumerki. Veiðiflugur munu nú bjóða upp á þessar flugulínur sem ódýran valkost fyrir veiðimenn.