Aquanova Intermediate (glær)

Aquanova intermediate er glær flugulína á mjög hagstæðu verði. Hún er framþung og hentar í lax og silungsveiði. Línan er fáanleg í línuþyngdum #3 – #9.

6.990kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Aquanova intermediate er hægsökkvandi glær flugulína en sökkhraði hennar er 4 cm á sekúndu. Línan er framþung, hún er framleidd með sterkri kápu sem hryndir frá sér óhreinindum. Lítið ber á línunni í vatnsskorpunni og fælir hún því fiska síður. Línan er hönnuð til að kasta allt frá smáflugum upp í meðalstórar túpur. Hún nýtist vel í straumvatni en ekki síður vatnaveiði, s.s. í Veiðivötnum.

Aquanova-línurnar eru framleiddar af kanadíska fyrirtækinu Norhern Sport. Meginstarfsemi Northern Sport hefur falist í framleiðslu á flugulínum sem seldar eru undir merkjum annarra fyrirtækja um allan heim, en minni áhersla hefur verið lögð í sölu á línum undir eigin vörumerki. Veiðiflugur munu nú bjóða upp á þessar flugulínur sem ódýran valkost fyrir veiðimenn.