Alta Vöðluskór (filt)

Alta 2.0 eru flottir vöðluskór frá Guideline, hannaðir til mikillar notkunar. Þeir eru gerðir úr vatnsfráhrindandi efnum til að halda þeim eins léttum og kostur er, bæði í vatni og á bakkanum. Uppbygging skónna er ekki ósvipuð og hefðbundinna gönguskóa, með góðum stuðningi við ökkla.

16.498kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Alta 2.0 eru flottir vöðluskór frá Guideline, hannaðir til mikillar notkunar. Þeir eru gerðir úr vatnsfráhrindandi efnum til að halda þeim eins léttum og kostur er, bæði í vatni og á bakkanum. Uppbygging skónna er ekki ósvipuð og hefðbundinna gönguskóa, með góðum stuðningi við ökkla. Tungan er framleidd úr neopren-efni til að draga úr þrýstingi á fótlegginn. Að innanverðu er skórinn sömuleiðis klæddur neopreni til að minnka núning við vöðlusokkinn og auka þannig endingu vaðlanna.

Efni vöðluskónna er einkar eðlislétt en um leið nægjanlega sterkt til að viðhalda nauðsynlegum stuðningi við fótinn. Skópar í stærð #10 vegur aðeins um 1200 grömm. Til að tryggja aukna endingu er filtsólinn bæði límdur og saumaður í skóinn. Alta vöðluskórnir fást nú einnig með vibram-sóla, stakir eða í vöðlupakka. Bæði filtsólann og vibram-sólann má negla.