Alta Sonic TiZip Vöðlupakki I

Virkilega flottur vöðlupakki sem inniheldur Alta Sonic TiZip vöðlur og Alta NGx eða Korkers vöðluskó. Vöðlurnar eru saumalausar rennilásavöðlur frá Guideline, framleiddar úr hágæða 4-laga nælonefni sem er bæði slitsterkt og endingargott.

121.900kr.

Alta Sonic TiZip Vöðlur

Darkhorse Vöðluskór

Devils Canyon Vöðluskór

Alta NGx Vibram Vöðluskór

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Flottur vöðlupakki sem samanstendur af Alta Sonic TiZip öndunarvöðlum frá Guideline og Alta NGx eða Korkers vöðluskóm. Vöðlurnar eru renndar að framan, saumalausar og framleiddar eru úr hágæða 4-laga nælonefni sem er bæði slitsterkt og endingargott. Vöðlurnar búa að saumalausum frágangi og í þær er notað tvennskonar nælonefni, annarsvegar sérstaklega styrkt efni á álagsstaði en léttara efni á síður viðkvæm svæði. Tveir rúmgóðir vasar eru að framan auk tveggja minni brjóstvasa. Á hliðum eru fóðraðir vasar fyrir hendur en einnig eru festingar fyrir ýmsa aukahluti, s.s. tangir, taumaklippur og háf. Sandhlífar og vöðlusokkar eru úr sterku neophreneefni og fylgir vöðlunum gott belti. Alta Sonic vöðlurnar hafa verið í notkun hjá mörgum leiðsögumönnum á Íslandi og reynst ákaflega vel.

Devils Canyon eru ákaflega léttir vöðluskór sem falla vel að fótunum. Þeir eru með góðan ökklastuðning, þeir eru fljótir að þorna en sérstakar rásir tryggja að vatn eigi greiða leið úr skónum þegar á bakkann er komið. Hæll og tá eru sérstaklega styrkt en skórinn sjálfur er framleiddur úr mjúku gúmmíefni sem aðlagar sig að fótum notenda.

Darkhorse skórinir eru uppbyggðir á svipaðan hátt og Devils Canyon. Þeir eru þó búnir sérstöku 3PFS-kerfi, sem eykur þægindi til muna og styður um leið við ökkla og liðbönd. Hællinn er klæddur þar til gerðum stuðningspúðum sem skorða fótinn örugglega. Báðir Korkers skórnir eru með M2 Boa® vírakerfi sem gerir reimarnar óþarfar og eykur mjög þægindi við veiðar en ekki síður við að fara í þá og úr. Þá er skórnir með útskiptanlegum OmniTrax-sólum, en þeim fylgir bæði gúmmí- og filtbotn.

Alta NGx vöðluskórnir frá Guideline eru með Vibram® Idrogrip gúmmísóla sem býður upp á þægindi, stöðugleika og langa endingu. Miðsólinn ásamt stífu gerviefni sjá til þess að veita frábæran stuðning í grófu landslagi. Skórnir eru sérstaklega styrktir og þola því betur hnjask frá hvössum grjótum þegar vaðið er.