Saumalausar rennilásavöðlur frá Guideline framleiddar úr hágæða 4-laga nælonefni sem er bæði slitsterkt og endingargott. Vöðlurnar búa að saumalausum frágangi en notast er við það sem kallast Ultrasonic, sem er einskonar bræðslutækni. Í þær er notað tvennskonar nælonefni, annarsvegar sérstaklega styrkt efni á álagsstaði en léttara efni á síður viðkvæm svæði.
Tveir rúmgóðir vasar eru að framan auk tveggja minni brjóstvasa. Á hliðum eru fóðraðir vasar fyrir hendur en einnig eru festingar fyrir ýmsa aukahluti, s.s. tangir, taumaklippur og háf. Sandhlífar og vöðlusokkar eru úr sterku neophreneefni og fylgir vöðlunum gott belti. Alta Sonic vöðlurnar hafa verið í notkun hjá mörgum leiðsögumönnum á Íslandi síðastliðin sumur og reynst ákaflega vel.