FLUGUKASTNÁMSKEIÐ

Stangaveiðifélag Reykjavíkur og Veiðiflugur munu í maí bjóða upp á flugukastnámskeið, fyrir byrjendur sem lengra komna.
Kennari verður einn fremsti flugukastkennari í heimi, Klaus Frimor.

 RÉTTU HANDTÖKIN

Klaus hefur síðustu áratugi starfað sem aðalhönnuður hjá Loop og Guideline þar sem hann hefur hannað, prófað og þróað flugustangir og flugulínur. Að auki hefur hann verið leiðsögumaður víðsvegar um landið um margra ára skeið.

Mikil reynsla býr þarna að baki og ættu allir veiðimenn, reyndir sem óreyndir, að geta aukið þekkingu sína og getu í fluguköstum. Farið verður yfir undirstöðuatriðin en jafnframt kafað dýpra og hin ýmsu afbrigði flugukasta kynnt til sögunnar.

Námskeiðin eru kjörin fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu köst, en nýtast einnig vanari veiðimönnum því hér gefst gott tækifæri að leiðrétta villur í köstunum og bæta um leið framsetningu flugunnar. Farið verður yfir ólíkar gerðir flugulína, notkun á mismunandi taumum og hvernig best er að haga veiðibúnaðinum svo vel takist til þegar á bakkann er komið. Það munu sannarlega allir græða á að sækja þessi námskeið enda gefst veiðimönnum kostur á að leita svara við öllum þeim spurningum sem viðkoma fluguköstum.

Námskeiðin verða fimm talsins og í fjórar klukkustundir hvert:

  • Föstudagurinn 20. maí kl. 18:00-22:00 – einhendu námskeið – 8 laus pláss
  • Laugardagurinn 21. maí kl. 10:00-14:00 – einhendu námskeið – 8 laus pláss
  • Laugardagurinn 21. maí kl. 15:00-19:00 – tvíhendu námskeið – 8 laus pláss
  • Sunnudagurinn 22. maí kl. 12:00-16:00 – einhendu námskeið – 8 laus pláss
  • Mánudagurinn 23. maí kl. 18:00-22:00 – tvíhendu námskeið – 8 laus pláss

Verð til félagsmanna SVFR er 12.000 kr., en þau sem ekki eru í félaginu greiða 15.000 kr.

Námskeið sem í boði eru

Vara uppseld
12.000kr.15.000kr.
Vara uppseld
12.000kr.15.000kr.
Vara uppseld
12.000kr.15.000kr.
Vara uppseld
12.000kr.15.000kr.
Vara uppseld
12.000kr.15.000kr.

Hægt er að ganga frá kaupum og skráningu á námskeiðin hér að ofan. Félagsmenn eru beðnir um að gefa upp kennitölu í skilaboðareit í körfu.

Námskeiðin verða haldin við Rauðavatn fyrir neðan Morgunblaðshúsið. Þátttakendur skulu mæta með stöng, hjól og línu. Gott er að vera með stígvél eða vöðlur meðferðis.